Formúlu 4 Deildin
Season 2
Brautarlisti
Til þess að vera með sem keppandi í F4 deildinni þarf að gera eftirfarandi:
-
Skrá sig í Aðalbón Racing Team (#12488) deildina í iRacing forritinu.
-
Skrá sig á Discord rás Aðalbón Racing Team.
-
Fylla út skráningarform fyrir keppnistímabilið.
-
Vera í áskrift hjá ABRT á meðan keppnistímabili stendur.
-
Skrá sig í Garage 61 lið Aðalbón
-
Lesa reglur deildarinnar.
Reglur
GREIN 1 - ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1 Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í F4 deildinni haldið af Aðalbón Racing Team.
1.1.2 Keppnir eru haldnar samkvæmt alþjóðlegri Reglubók FIA um kappakstur, aksturshegðun og framkomu ásamt reglum deildarinnar.
1.1.3 Ef reglur deildarinnar skarast á við reglubók FIA, þá gilda reglur deildarinnar með fráviki til kafla 4 í viðauka L í reglubók FIA.
1.1.4 Nöfn liða, og merkingar bíla skulu vera innan skynsemismarka.
1.1.5 Passa skal að það sést í allar skyldumerkingar sem úthlutað er fyrir alla keppnisbíla.
1.1.6 Skyldumerkingar geta tekið breytingum, en það er á ábyrgð bílstjóra að vera með réttar merkingar á bílunum (sjá 1.1.5) og að þær séu sýnilegar.
1.1.7 Ef að skyldumerkingar og litur keppnisbíls eru eins, þá má eingöngu breyta lit á þeim skyldumerkjum sem eru hvít nú fyrir, í svartan, nema keppnisstjórn sé látin vita með nægum fyrirvara og gefi leyfi fyrir hverja breytingu fyrir sig. (Dæmi; Málningarvörur eru með hvítum texta sem að má breyta í svart, en sjálft merkið fyrir ofan þarf að halda sínum upprunalega lit og vera sýnilegt).
1.1.8 Keppnisstjórn getur gert smávægilegar breytingar á reglugerðum allt að tveimur dögum fyrir keppni, en stærri breytingar allt að fimm dögum fyrir keppni.
GREIN 1.2 KEPPNI & FUNDIR
1.2.1 Lengd keppna í “Grand Prix” útfærslu miðast við um 180km. Keppnir í “Sprint” útfærslu miðast við tvö holl. Það fyrra um 60km. Það seinna um 120km.
1.2.2 Ökumenn skulu hefja keppni með 5-20L af eldsneyti í bílnum.
1.2.3 Nema annað sé tekið fram, þá verður keppendum refsað burt séð frá því hvort að atvik var óvart, óviljugt eða annað, óháð afleiðingum þess.
1.2.4 Ökumönnum ber skylda að vera viðstaddir á keppnisfundar rás inni á Discord rás Aðalbón Racing Team frá því að keppnisfundur hefst og þar til að honum líkur.
1.2.5 Óheimilt er að aka á braut á meðan keppnisfundur er.
1.2.6 Ökumenn verða að passa upp á það sjálfir að skrá sig á keppnis-þjóninn áður en tímatöku líkur ætli þeir að taka þátt í keppni, en iRacing þjónninn lokar fyrir innskráningar sjálfkrafa þegar að tímatöku líkur.
1.2.7 Keppnisstjórn getur tafið ræsingu keppnar um allt að 5 mínútum, séu góðar ástæður fyrir því, en aldrei ræst keppni af stað fyrr en áætlun segir til um. Þetta er gert til að gæta þess að allir séu búnir að koma sér fyrir og passa upp á að búnaður sé í lagi.
GREIN 1.3 VEÐUR
1.3.1 Hver keppni fyrir sig verður haldin á þeim mánaðar degi sem keppnin er haldin, og stillt verður klukkuna á afternoon í herminum.
1.3.2 Nákvæmar veður stillingar verða eftirfarandi:
Cloud cover:
auto
Chance of rain:
auto
Temperature:
auto
Wind speed:
auto
Wind direction:
Auto
GREIN 1.4 BÍLL
1.4.1 Keppt verður á FIA F4 bílnum með opnar stillingar.
1.4.2a Keppendur munu hafa aðgang af ABRTSetups stillingum fyrir bílinn, gegn því að vera í BETRI áskrift, í það minnsta tveimur dögum fyrir hverja keppni, en er frjálst að nota aðrar stillingar.
1.4.2b ATH að keppendur þurfa sjálfir að sækja stillingar á heimasíðu ABRT þegar þeir eru í áskrift.
GREIN 1.5 BRAUTIR
1.5.1 Keppt verður á Grand Prix brautar sniði bjóði brautin upp á það, nema að annað sé tekið fram.
1.5.2 Hver braut hefur sinn eigin hámarkshraða á þjónustusvæði sem þarf að fylgja. Þessu er alfarið stýrt af iRacing.
GREIN 1.6 ÞJÓNUSTUSVÆÐI BRAUTA
1.6.1 Hraðatakmarkanir eru á þjónustusvæðum hverra brautar og er það á ábyrgð bílstjóra að aka ekki of hratt inn á þjónustusvæði.
1.6.2 Bílstjórar mega búast við grófri refsingu, úthlutað sjálfvirkt af iRacing þjóninum í miðri keppni, keyrir bílstjóri yfir hraðatakmörkun þjónustusvæðis.
1.6.3 Það er á ábyrgð bílstjóra að kynna sér hvar mörk þjónustusvæðis er fyrir hverja keppni fyrir sig.
1.6.4 Hraðatakmarkanir þjónustusvæðis fyrir hverja braut eru eftirfarandi:
Suzuka: 80 km/klst.
Miami: 60 km/klst.
Imola: 80 km/klst.
Mexico: 80 km/klst.
Nurburgring: 60 km/klst
Adelaide: 40 km/klst
GREIN 1.7 LAGFÆRINGAR BÍLA
1.7.1 Bílstjórar fá eitt fast repair sem gerir þeim kleift að laga bílinn sinn inn á þjónustusvæði samstundis.
1.7.2 Sé bíll óökuhæfur gæti bílstjóri þurft að kalla og bíða eftir towing, en iRacing þjónninn sér um alla útreikninga á þeim tíma sem það tekur.
GREIN 1.8 DEKK OG ELDSNEYTI
1.8.1 Bílstjórum er heimilt að skipta um dekk eins oft og þeim sýnist á meðan keppni stendur.
1.8.2 Bílstjórar geta komið inn á þjónustusvæði og fyllt eldsneytistankinn í eins miklu magni og eins oft og þeim sýnist, hvenær sem er, svo lengi sem að iRacing þjónn lokar ekki fyrir akstur inn á þjónustusvæði vegna gulra fána.
GREIN 1.9 GARAGE61
1.9.1a Skylda verður að vera með opið fyrir Garage61, í Aðalbón ART liðinu, á meðan keppnistímabili stendur yfir.
1.9.1b Nóg er að hafa opið fyrir activity, en aðrar reglur gilda um þegar keppni stendur yfir.
1.9.1c Þegar keppni stendur yfir þarf hver bílstjóri að passa upp á að vera með opið fyrir activity og telemetry.
1.9.1d Opið þarf að vera fyrir activity og telemetry á keppnislotuni á Garage61 þar til að sjö dagar hafa liðið frá því að umferðin hefur klárast.
GREIN 2 - KEPPNIS FYRIRKOMULAG
GREIN 2.1 ALMENNT
2.1.1 Ræst er úr kyrrstöðu með stillingum iRacing.
2.1.2 Skylt er að hafa hljóðrásir í iRacing virkar svo til að keppnisstjóri geti gefið fyrirmæli, séu þörf á.
2.1.3 Rás-æfingar eru leyfðar á meðan að æfingu stendur og má aðeins framkvæma af aksturslínu og/eða keilu sem að afmarkar enda þjónustusvæðis.
2.1.5 Sá sem að framkvæmir rás-æfingu þarf að hafa í hugsa að gera það á öruggann hátt þannig að það valdi ekki öðrum óþægindum sem eru að aka út af þjónustusvæði.
2.1.6 Fagnaðarspól er leyfilegt í lok keppnis en skal vera á stað sem telst öruggur gagnvart öðrum bílstjórum sem eru að klára sinn akstur og kæli hring.
2.1.6 Í þessari deild telst blátt og gult flagg eins og finnst í iRacing jafngilda bláu flaggi eins og það er talið í viðauka L, kafla 4 í reglubók FIA
GREIN 2.2 ÖKUMENN
2.2.1 Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV. viðauka L í reglubók FIA um aksturs hegðun á brautum.
GREIN 2.3 TÍMATAKA
2.3.1 Tímataka hefst kl. 20:00 (GMT).
2.3.2 Tímataka stendur yfir í 15 mínútur og er í opnu sniði. Þessu er stýrt af iRacing.
2.3.3 Notast verður við moderate qualifying scrutiny stillingu, stýrt af iRacing.
2.3.4 Sá bíll sem er á upphitunar hring skal víkja af aksturslínu fyrir bíl á heitum hring.
2.3.5 Það er ávallt á ábyrgð bílstjóra að mynda nægilegt bil á milli annara bílstjóra, og telst það ekki sem hindrun þó að fremri bíll sé hægari en sá aftari, sé ljóst að keyrt sé á fullum hraða að getu bílstjóra.
GREIN 2.4 KAPPAKSTUR
2.4.1 Ökumaður á rétt á bílbreidd auk breidd framdekkjar, frá brautarmörkum eins og iRacing túlkar þau, sé bíll samhliða öðrum bíl.
2.4.2 Verjandi bíl er óheimilt að ýta eltandi bíl út fyrir brautarmörk, eða stofna eltandi bíl í hættu þar sem að eltandi bíll þarf að aka með dekk í grasi, möl, mold, sé eltandi bíll talinn samhliða.
2.4.3 Eltandi bíl er óheimilt að ýta verjandi bíl út fyrir brautarmörk eða stofna verjandi bíl í hættu þar sem að verjandi bíll þarf að aka með dekk í grasi, möl eða mold, sé eltandi bíll að reyna við framúrakstur.
2.4.4 Verjandi bíll á rétt á þeirri línu sem að hann vill og er takmarkaður að einni verjandi hreyfingu frá aksturslínu, og þar eftir einni hreyfingu til baka í átt að aksturslínu með bílbreidd auk breidd framdekks frá brautarmörkum eins og iRacing túlkar þau.
2.4.5 Ökumanni er óheimilt að aka utan brautar eða þvinga annan ökumann út fyrir brautarmörk þar sem hann viðheldur eða græðir stöðu og ber honum skylda að gefa til baka stöðu innan við komandi þrjú bremsusvæði.
2.4.6 Ökumanni er óheimilt að aka utan brautar þar sem hann græðir tíma og ber honum skylda að gefa til baka græddan tíma.
2.4.7 Þurfi ökumaður að hleypa öðrum ökumanni frammúr sér vegna refsingar eða brota skal hann gera það af aksturslínu og á öruggan máta.
GREIN 2.5 NÁNAR UM FRAMÚRAKSTUR
2.5.1 Framúrakstur telst hafinn þegar framdekk eltandi bíls nemur við afturdekk verjandi bíls.
2.5.2 Bíll getur aðeins verið talinn samhliða ef að framdekk eltandi bíls nemur við afturdekk verjandi bíls.
2.5.3 Framúrakstur telst fullkomnaður þegar að framvængur verjandi bíls nemur ekki lengur við afturvæng eltandi bíls.
2.5.4 Öruggur framúrakstur er að mestu leyti á ábyrgð eltandi bíls, þar sem verjandi bíll gefur nægilegt pláss.
2.5.5 Í samtengdum beygjum með sömu beygju-átt telst fyrri beygja klárast og seinni beygja taka við, þegar bíll hefur rétt úr sér í samræmi við ytri kannt fyrri beygju.
GREIN 2.6 NÁNAR UM VARNARAKSTUR
2.6.1 Verjandi bíll er takmarkaður að einni varnar hreyfingu frá aksturslínu, og þar eftir, einni hreyfingu til baka í átt að aksturslínu með bílsbreidd auk breidd framdekks frá brautarmörkum eins og iRacing túlkar þau.
GREIN 2.7 ÖRYGGISBÍLL
2.7.1 Keppnisstjórn hefur kost á því að kalla út öryggisbíl í öllum umferðum og hollum mótsins.
2.7.2 Engin takmörkun er á fjölda öryggisbíla í einni keppni.
GREIN 3 - STIGAGJÖF
GREIN 3.1 ALMENNT
3.1.1 Stig fylgja framlengdu og stækkuðu Grand Prix sniði en fylgja öðru sniði í sprint keppnum (sjá 5.2.1 og 5.2.2)
P1 35 P11 10
P2 28 P12 9
P3 25 P13 8
P4 22 P14 7
P5 20 P15 6
P6 18 P16 5
P7 16 P17 4
P8 14 P18 3
P9 12 P19 2
P10 11 P20 1
3.1.2 Séu tveir eða fleiri með jafn mörg stig í lok keppnistímabils, skal þá raða þeim upp eftir því hver hefur sigrað fleiri keppnir á tímabilinu.
3.1.3 Sé staðan ennþá jöfn, skal telja fjölda 2. sætis, og svo koll af kolli. Þar eftir kemur fjöldi ráspóla og að lokum fæstu atvikastig. Ef ekki er hægt að skera á milli sigurvegara, deila þeir ökumenn sætinu.
GREIN 3.2 STIG BÍLSTJÓRA
3.2.1 Bílstjórar safna stigum í samræmi við unnin stig í keppnum (sjá reglu 3.1.1).
3.2.2 Sá bílstjóri með flest stig í lok tímabils (að frádregnum refsi-stigum, eigi það við) telst Formúlu 4 deildar meistari.
GREIN 3.3 STIG LIÐA
3.3.1 Lið safna samtals stigum bílstjóra í samræmi við unnin stig í keppnum (sjá reglu 3.1.1).
3.3.2 Það lið með flestu stig í lok tímabils (að frádregnum refistigum, eigi það við), telst Formúlu 4 deildar liða meistarar.
GREIN 4 - REFSINGAR OG ÁKÆRUR
GREIN 4.1 ALMENNT
4.1.1 Bílstjórum verður refsað gegn broti á reglum í formi stiga refsingar, tíma refsingar, tímatöku banni eða keppnis banni, í samræmi við alvarleika brots.
4.1.2 iRacing þjónninn mun sjá um almennar refsingar í formi incident points vegna snertinga bíla, aksturs utan brautar marka og stjórnmissi bíls sem dæmi. Fleiri upplýsingar um sjálfvirkar refsingar þjóns má finna í iRacing Sporting Code. Þetta jafngildir því að iRacing þjónn telst sem staðreyndardómari í öllum keppnum.
4.1.3 Þegar að ökumaður hefur fengið fimmtán incident points mun iRacing þjónn láta viðkomandi ökumann keyra í gegnum þjónustusvæði. Refsing telst kláruð þegar að ökumaður hefur keyrt í gegnum þjónustusvæði án þess að stoppa, og er stýrt af iRacing þjóni. Þetta kallast drive-through.
4.1.4 Eftir að fimmtán incident points hefur verið náð og refsing fullkomnuð, þá færist þröskuldur refsingar niður í hver sjö incident points þar sem að iRacing þjónn krefst sömu refsingar (sjá reglu 4.1.3).
4.1.5 Hafi bílstjóri náð samanlagt þrjátíu incident points verður honum sjálfkrafa vikið úr keppni af iRacing þjóni.
4.1.6 Of hraður akstur á þjónustusvæði jafngildir almennt stop-and-go refsingu sem úthlutað er af iRacing þjóninum og þurfa bílstjórar að sinna því innan þriggja hringja eða áður en loka hringur er ekinn, eftir því hvort kemur á undan.
4.1.7 Sé brotið alvarlega á reglu 4.1.6, sem dæmi, með ofsa hraðakstri í gegnum þjónustusvæði, þá mun iRacing þjónninn sjá um refsingu vegna þessa, og gefur það keppnisstjórn heimild til að vísa keppanda úr keppni.
4.1.8 Brjóti keppandi á reglu 1.2.2 getur sá keppandi búist við því að vera dæmdur úr keppni.
GREIN 4.2 DÆMI UM REFSINGAR
4.2.1 Refsing á eltandi bíl:
A. Eltandi bíll er ekki samhliða verjandi bíl, og ekur í hlið verjanda bíls að innraverðu
B. Eltandi bíll sem reynir framúrakstur gefur ekki nægilegt pláss áður en framúrakstur telst fullkomnaður.
4.2.2 Refsing á verjandi bíl:
A. Verjandi bíll gefur ekki nægilegt pláss fyrir eltandi bíl sem ekur samhliða honum.
B. Verjandi bíll býr til aðstæður þar sem samhliða eltandi bíll þarf að aka í grasi, möl eða mold.
4.2.3 Almennar refsingar:
A. Ökumaður er akandi á meðan skyldu-keppendafundur er í gangi.
B. Ökumaður á úthring eða kælihring hindrar ökumann á hröðum hring.
C. Ökumaður hefur keppni með minna en 5 lítra eða meira en 20 lítra
GREIN 4.3 ÁKÆRUR
4.3.1 Allar ákærur eru meðhöndlaðar eftir að keppni líkur.
4.3.1b Ákærukostnaður er 1,000 kr. og er hægt að borga það inni á ABRTSetups.com eða með frádrætti af uppsöfnuðu verðlaunafé.
4.3.2 Eingöngu verður hægt að senda inn kæru tólf tímum eftir að keppni líkur, og stendur kærufrestur yfir í þrjátíu og sex klukkutíma eftir opnun.
4.3.3 Berist ákæra fyrir utan þennan uppgefna kæruramma verður það ekki tekið fyrir.
4.3.4 Ákærur þurfa að berast í eftirfarandi form, og þarf það að innihalda .rpy skjal sem vistað er í gegnum iRacing þjóninn eftir að keppni lýkur, ásamt stuttri útskýringu á kæru.
4.3.5 Keppendur frá úthlutað ákæru númer við ákæru, og verður því komið til ákærða sem fær sólarhrings frest til þess að áskora.
4.3.5b Áskorun á ákæru kostar 1,000 kr. og er hægt að borga það á ABRTSetups.com eða með frádrætti af uppsöfnuðu verðlaunafé.
4.3.6 Keppenda verður einungis úthlutað refsingu ef keppnisstjórn berst ákæra í gegnum ákæruform innan við uppgefinn tímaramma.
GREIN 5 - SPRINT KEPPNIR
GREIN 5.1 FYRIRKOMULAG SPRINT KEPPNA
5.1.1 Sprint keppnir eru haldnar í tveimur hollum í sömu lotu.
5.1.2 Tímataka ræður rásröð fyrir fyrra holl og útkoma úr fyrra holli ræður rásröð fyrir holl númer tvö fyrir utan efstu 8.
5.1.3 Fremstu 8 keppendur í lok fyrra holls eru í öfugri rásröð fyrir seinna holl
5.1.4 Holl númer eitt er um 60km. Holl númer tvö er um 120km.
GREIN 5.2 STIGAGJÖF SPRINT KEPPNA
5.2.1 Stigagjöf fyrir fyrra holl er eftirfarandi:
P1 20
P2 15
P3 12
P4 10
P5 8
P6 6
P7 4
P8 3
P9 2
P10 1
5.2.2 Stigagjöf fyrir seinna holl er eftirfarandi:
P1 25 P11 5
P2 20 P12 4
P3 17 P13 3
P4 15 P14 2
P5 12 P15 1
P6 10
P7 9
P8 8
P9 7
P10 6
GREIN 5.3 SPRINT KEPPNIR
5.3.1 Eftirfarandi keppnir í þessu tímabili eru samkvæmt Sprint fyrirkomulagi:
Miami International Autodrome - 26.05.2026 - fyrra holl 11 hringir - seinna holl 22 hringir.
Nürburgring Grand-Prix-Strecke - 23.06.2026 - fyrra holl 13 hringir - seinna holl 26 hringir.
GREIN 6 - LIÐAREGLUR
6.1.1a Lið er skráð í skráningarform og þar skal koma fram nafn liðs og nafn liðsfélaga.
6.1.1b Ef ekki er skráð nafn liðs eða nafn liðsfélaga verður keppanda úthlutað annaðhvort.
6.1.2 Hámarksfjöldi keppenda í liði í hverri umferð eru tveir ökumenn.
6.1.3 Ökumönnum er heimilt að skipta um lið ef liða breyting er tilkynnt að minnsta kosti 24 klukkustundum fyrir ræsingu til keppnisstjórnar og á Discord rás Aðalbón Racing Team
6.1.4 Stig ökumanna færast ekki með liðabreytingum.
6.1.5 Liði er heimilt að vera með varamann en þeim ökumanni er ekki heimilt að breyta um lið á meðan tímabili stendur.
6.1.6 Ökumenn fá einungis þátttöku gilda séu þeir merktir og/eða í lit sem tilheyrir því liði sem þeir teljast keyra undir.
6.1.7 Stig liða sjá 3.3.
GREIN 7 - VERÐLAUNAFÉ OG ÚTHLUTUN
GREIN 7.1 VERÐLAUNAFÉ
7.1.1 Verðlaunafé verður úthlutað tveim vikum eftir að seinustu keppni lýkur.
7.1.2 Verðlaunafé verður greitt út í formi innlagnar á bankareikning með kennitölu keppanda. Upphæðin samstendur upphæðini sem keppandi hefur safnað sér inn í gegnum tímabilið samkvæmt 7.1.3.
7.1.3 Verðlaunafé er veitt fyrir hverja keppni og er í eftirfarandi sniði;
P1 15,000 kr.
P2 10,000 kr.
P3 7,000 kr.
P4 5,000 kr.
P5 4,000 kr.
P6 3,000 kr.
P7 2,000 kr.
P8 1,000 kr.
7.1.4 Verðlaunafé fyrir sprint keppnir er veitt gegn röðun á samanlögðum stigum keppenda úr báðum hollum í þeirri lotu og fylgir sniði samkvæmt 7.1.3.

.png)

_svg.png)

.png)
.png)